<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d19270800\x26blogName\x3dI+have+the+right+to+remain+fabulous+y...\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://dd-unit.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3den_US\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://dd-unit.blogspot.com/\x26vt\x3d2568934563310508046', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

Friday, April 07, 2006

sko..

stjörnumerkin eiga alltaf að vera segja manni hvað maður er góður og misskilin og að ástin sé að koma eða fara eða draumavinnan sé á leiðinni eða maður eigi að fara til útlanda eða spara..

hérna er ein sem segir soldið annað.. ég skrifaði þetta ekki.. en ég er farin upp í sumarbústað og góða helgi yall


Smá um stjörnumerkin...

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti,
góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp
skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og
slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu
einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður
og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar
um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki
úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en
stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf
á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð
járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem
þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum
þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi
og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla
og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í
drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og
upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll,
þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin
málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar
á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er
augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir
eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í
heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei
neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en
gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert
stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur,
en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og
ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það
loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur
og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur,
færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og
hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu
og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt.
Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu,
en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með
að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig
þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú
í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki,
fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og
segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og
þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að
breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og
alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað
hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður,
ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun
alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki
hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að
fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er
ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert
sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

8 Comments:

Blogger jonas said...

ég játa - ég er vatnsberi!

5:39 PM  
Anonymous Anonymous said...

Thanks alot.

Meyjan.

10:16 PM  
Blogger d-unit said...

mér finnst þetta persónulega bara way off... að ég grauti í öllu en kunni ekki neitt halló!!!

5:35 PM  
Blogger jonas said...

þetta er samt merkilega spott-on finnst mér... allavega miðað við þá sem ég þekki nógu vel til þess að geta sagt eitthvað svona um - ?

11:16 AM  
Blogger d-unit said...

jamm það er að vísu alveg sannleikskorn þarna og það en þetta er nú líka heldur brútal sko..

how life treatin ya Johnny?

6:44 PM  
Blogger jonas said...

lífið? fínt... ef ég kem heim kem ég til með að kenna Afrísk Fræði kúrsinn í HÍ og ef ekki hef ég fengið vinnu einhvers staðar erlendis... en ef ég kem heim vantar mig stað til þess að búa á og vinnu með kennslunni - veistu um eitthvað??? Annars hef ég joinað 'tha skinny brigade' og misst tólf kíló síðan í haust, farinn að reykja upprúllaðar sígarettur og á kærustu frá Úganda - life couldn´t be any better!

9:37 PM  
Blogger jonas said...

já og síðan er ég farinn að taka upp rapplög - endilega kíktu á þau - http://www.myspace.com/mrorthogonal - tell me how you like it - hvort ég eigi að fara senda þetta á K-Fed?

9:11 PM  
Blogger d-unit said...

will do dude.. líst bara helvíti vel á þetta...
K-fed er auðvitað með kúkinn í hárinu og þú getur sko rúllað honum upp anyday of the week dude..

luv d

vildi að ég væri á the skinny brigade líka og myndi missa 12 kíló..

djöfullinn.. :(

D

9:35 PM  

Post a Comment

<< Home